Velkomin á heimasíðu um Furufjörð á Hornströndum. Allar ábendingar varðandi efni og myndir frá Furufirði eru vel þegnar og má senda á netfangið furufjordur@furufjordur.net.
Hér er að finna sögu Furufjarðar, samantekt á landslagi og náttúru fjarðarins og skyggst er inn í gamla tíma um hvernig ábúendur lifðu áður en fjörðurinn fór í eyði. Eftir að afkomendur síðar byrjuðu að dvelja í Furufirði á sumrin hafa líka skapast skemmtilegar hefðir, leikir og ýmsilegt annað sem við viljum deila með þeim sem kunna að meta fjörðinn okkar og Hornstrandir.
Á síðunni er að finna ýmsar ganglegar upplýsingar fyrir ferðalanga sem ætla að heimasækja Furufjörð eða stefna á gönguferðir á Hornströndum. Við bendum á hvaða ferðamöguleikar eru í boði til að komast í Furufjörð, gönguleiðir í og úr Furufirði, vöð, útbúnað, áningarstaði og marg fleira.
Lumarðu á skemmtilegri ferðasögu af Hornströndum? Eða viltu koma góðum ábendingum á framfæri? Gestir síðunnar eru hvattir til að skrifa nafnið stitt í gestabókina og senda okkur kveðju.
Ef þú skráir netfangið þitt á póstlistann látum við þig vita þegar heimasíðan er tilbúin.
Þeir sem vilja styrkja eða heita á bænhúsið í Furufirði geta lagt inn á reikning 1176-05-400518 og kt. 161046-2219. Einnig er hægt að kaupa minningarkort með mynd af bænhúsinu í Furufirði.